„Tökum flugið“ – Ráðstefna um flugmál á Akureyri
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Markaðsstofa Norðurlands og Flugklasinn Air 66N munu halda ráðstefnu um flugmál á Akureyri þann 26. apríl næstkomandi. Ráðstefnan verður haldin í Hofi klukkan 12:30 til 16:00.
Fjallað verður meðal annars um stöðuna á uppbyggingu Akureyrarflugvallar, reynslu af flugi frá Hollandi og framtíðarhorfur í millilandaflugi á Akureyri. Einnig verða fulltrúar frá Niceair með kynningu á áformum félagsins.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










