Fyrsta hvalaskoðunarferð ársins á Skjálfanda var farin í gær þegar báturinn Bjössi Sör hélt út á flóann með tuttugu farþega um borð. Það var blíðskaparveður og falleg vetrarstilla á Húsavík og aðstæður hinar bestu til siglinga.
Skemmst er frá því að segja að það voru eingöngu liðnar 15 mínútur af ferðinni þegar að áhöfnin kom auga á fyrsta hval vertíðarinnar. Þar var á ferðinni hinn hressasti hnúfubakur sem heldur betur gladdi farþega og áhöfn með nærveru sinni.
Hvalaskoðunarvertíðin á Húsavík hefst formlega þann 1. mars næstkomandi. Norðursigling tók forskot á sæluna í gær, en fyrirtækið siglir nokkrar sérferðir í febrúar.
Það er óhætt að segja að þessi fyrsta ferð sé aldeilis frábær byrjun á afmælisári Norðursiglingar en í sumar verða 25 ár liðin síðan fyrirtækið hóf hvalaskoðun á Skjálfanda.