Tíu krakkar fengu hlutverk í Skilaboðaskjóðunni

Um 120 krakkar mættu í áheyrnarprufur þegar Leikfélag Akureyrar auglýsti eftir leikurum í Skilaboðaskjóðuna sem frumsýnd verður í febrúar 2027. Tíu krakkar fengu í kjölfarið þau skemmtilegu skilaboð að þau hafi fengið hlutverk í sýningunni.
„Það var erfitt verkefni sem tók við hjá listrænum stjórnendum sýningarinnar þegar velja þurfti úr þessu hæfileikaríka hópi,“ segir í tilkynningu á vef Menningarfélags Akureyrar.
Hópinn skipa þau: Benóný Þór Jónasson, Ólöf Birna Kristjánsdóttir, Agnes Emma Guanci, Ester Jóna Bryndísardóttir, Heiðbrá Hekla Sigurgeirsdóttir, Rakel Heiða Björnsdóttir, Margrét Lára Rúnarsdóttir, María Rut Norðfjörð, Brynja Hlín Björgvinsdóttir og Ólafur Árni Haraldsson.
Þessi fjölbreytti hópur á nú fyrir höndum skemmtilegt og krefjandi æfingaferli er þau hefja sína sameiginlegu ferð inn í ævintýraheim Skilaboðaskjóðunnar þar sem þau munu stíga á svið með atvinnufólki og verða hluti af einni stærstu fjölskyldusýningu vetrarins.
Æfingar hefjast í nóvember undir stjórn Bergs Þórs Ingólfssonar, leikhússtjóra og miðað við þá gleði sem lék um Borgarasal Samkomuhússins er krakkarnir hittust í fyrsta sinn má ætla að tilhlökkunin sé þegar farin að gera vart við sig.
Tengdar greinar
Uppfært: 1. október 2026





