Gæludýr.is

Tinna Valgerður til liðs við KA/Þór

Tinna Valgerður til liðs við KA/Þór

Handboltakonan Tinna Valgerður Gísladóttir skrifaði í dag undir lánssamning við KA/Þór og leikur því með liðinu út þetta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA í dag.

Þar segir meðal annars að Tinna sé strax orðin lögleg með liðinu og getur því leikið með liðinu í leiknum gegn Fram-2 í Lambhagahöllinni sem hefst klukkan 18:15.

Tinna sem er örvhent skytta en getur einnig leikið í hægra horni kemur norður frá Gróttu þar sem hún hefur leikið það sem af er vetri en þar áður var hún í Þýskalandi þar sem hún bjó með Bjarna Ófeigi Valdimarssyni leikmanni KA. Tinna lék með sterku liði Fram árin 2021 til 2023.

„KA/Þór er taplaust á toppi Grill66 deildarinnar fyrir lokakafla deildarinnar og ljóst að koma Tinnu mun styrkja liðið enn frekar í baráttunni um sæti í deild þeirra bestu. Það er afar spennandi að fá hana norður og bjóðum við hana hjartanlega velkomna,“ segir í tilkynningunni á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó