Tímavélin er gamall liður hér á Kaffinu þar sem við birtum skemmtilega og eftirminnilega hluti, myndbönd, myndir, viðtöl og fleira úr fortíðinni.
Í tímavélinni í dag förum við til baka til ársins 1997 þegar Barnaskóli Akureyrar og Gagnfræðiskóli Akureyrar voru sameinaðir í einn hverfisskóla, sem lifir enn í dag góðu lífi, Brekkuskóla. Nemendur og kennarar voru spurðir út í álit sitt á breytingunum í tímariti um skólalífið í landinu. Svörin voru ansi skrautleg og skemmtileg og má lesa þau á myndinni hér að neðan.
Smelltu hér til að skoða myndina í betri gæðum og þar með læsilegri texta.
UMMÆLI