KA menn mættu Stjörnunni í oddaleik liðana um sæti í úrslitum Íslandsmeistaramótsins í blaki í gærkvöldi. Stjarnan vann fyrsta leik liðanna 3-1 en KA jafnaði einvígið með 3-2 sigri í leik tvö.
Sjá einnig: KA tókst að knýja fram oddaleik
Stjörnumenn unnu fyrstu hrinu oddaleiksins 25-23. KA mennjöfnuðu leikinn í annarri hrinu með 25 stigum gegn 22. Stjarnan vann þó síðustu tvær hrinur leiksins og tryggðu sér 3-1 sigur. Lokasprettur fjórðu hrinu var æsispennandi en Stjarnan vann að lokum 29-27 og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum gegn HK.
Stigahæstur í leiknum var Hristiyan Dimitrov leikmaður KA með 29 stig.
UMMÆLI