MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Tilnefningar til íþróttafólks Akureyrar árið 2021

Eftir Ingólfur Stefánsson·
1643641234_ithrottamennakureyrar2020
kaffid.is

Íþróttabandalag Akureyrar hefur opinberað þá tíu íþróttakarla og þær tíu íþróttakonur sem eru tilnefnd sem íþróttafólk bæjarins árið 2021.

Tilkynnt verður á fimmtudaginn næstkomandi um val á íþróttakarli og íþróttakonu Akureyrar. Oft hefur bæjarbúum verið boðið til athafnar við þetta tilefni, en vegna aðstæðna verður athöfnin lágstemmd og fámenn líkt og í fyrra. Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Akureyrarbær standa að valinu en þetta er í 43. sinn sem framúrskarandi íþróttafólk sveitarfélagsins (áður íþróttamaður Akureyrar) er heiðrað.

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakarls Akureyrar 2021:

  • Árni Bragi Eyjólfsson, KA, fyrir handbolta.
  • Baldvin Þór Magnússon, UFA, fyrir hlaup (millivegalengdir).
  • Brynjar Ingi Bjarnason, KA, fyrir knattspyrnu.
  • Gunnar Aðalgeir Arason, SA, fyrir íshokkí.
  • Isak Stianson, SKA, fyrir skíðagöngu.
  • Izaar Arnar Þorsteinsson, Akur, fyrir bogfimi.
  • Jóhann Gunnar Finnsson, FIMAK, fyrir hópfimleika.
  • Lárus Ingi Antonsson, GA, fyrir golf.
  • Þorbergur Ingi Jónsson, UFA, fyrir fjallahlaup.
  • Þorlákur Sigurðsson, Nökkvi, fyrir siglingar.

Myndband sem kynnir íþróttakarlana betur:

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakonu Akureyrar 2021:

  • Aldís Kara Bergsdóttir, SA, fyrir listhlaup.
  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA, fyrir golf.
  • Anna María Alfreðsdóttir, Akur, fyrir bogfimi.
  • Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór vegna Þór/KA, fyrir knattspyrnu.
  • Karen María Sigurgeirsdóttir, Þór vegna Þór/KA, fyrir knattspyrnu.
  • Katla Björg Dagbjartsdóttir, SKA, fyrir alpagreinar.
  • Paula Del Olmo Gomez, KA, fyrir blak.
  • Rakel Sara Elvarsdóttir, KA vegna KA/Þór, fyrir handbolta.
  • Rut Jónsdóttir, KA vegna KA/Þór, fyrir handbolta.
  • Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, UFA, fyrir hlaup (millivegalengdir og langhlaup).

Myndband sem kynnir íþróttakonurnar betur:

https://youtube.com/watch?v=hCjyIK7x70M

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026