Þýskt djasstríó á Minjasafninu

Í sumar heldur saxófónleikarinn Moritz Christiansen í tónleikaferðalag um sitt fyrrum heimaland, Ísland, ásamt tríói sínu frá Hamborg. Í upphafi ferðarinnar mun tríóið vinna að nýrri tónlist, sem þau munu síðan flytja á ýmsum stöðum víðs vegar um landið og taka upp í hljóðveri í lokin.
Tónlistina má flokka sem norrænan djass og býr hún yfir víðum hljómi þar sem áhersla er lögð á skýrar laglínur og það að segja sögur. Tónlistin þróast hægt og stöðugt, en geymir þó óvænta hnykki og sveiflur.
Aðrir tónleikar ferðarinnar verða á Minjasafninu á Akureyri áður en tríóið heldur áfram austur.
Auk Moritz skipa tríóið þeir Alex Petratos trommuleikari og Anton Deyß gítarleikari.
Miðaverð: 1000kr.
Hér má finna viðburðinn á Facebook: https://fb.me/e/3YjM8R60k
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










