Lögreglan á Norðurlandi eystra óskaði eftir viðveru þyrlusveitarinnar um síðustu helgi vegna þess að gert var ráð fyrir fjölmenni á Norðurlandi, meðal annars vegna Fiskidagsins mikla.
Viðbragðstími þyrlusveitarinnar verður styttri með þyrlunum staðsettum á sitthvorum hluta landsins, en síðustu helgi voru þyrlurnar gerðar út frá Akureyri og Vestmannaeyjum og gafst það vel.
Þyrlan sem staðsett er á Akureyri hefur sinnt fimm útköllum yfir helgina, nokkur vegna alvarlegra slysa segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi landhelgisgæslunnar. Með því að hafa þyrluna staðsetta á Akureyri var viðbragðstími mun styttri og hægt að koma slösuðum fyrr undir læknishendur.
Frétt: SSNE Nánari umfjöllun um málið má finna á vef Akureyri.net í dag.
UMMÆLI