Krónan hefur opnað þurrvörubar í verslun sinni í Skeifunni. Þurrvörubarinn er ný viðbót inn í umbúðalausar lausnir Krónunnar þar sem markmiðið er að styðja enn betur við vistvænni neysluhætti viðskiptavina. Í desember opnar einnig þurrvörubar á Akureyri þegar ný verslun Krónunnar opnar.
„Við byrjum með þurrvörubarinn í Skeifunni og erum spennt að sjá hvernig hann leggst í viðskiptavini okkar. Við sjáum í nágrannalöndum okkar að svona þjónustu hefur verið vel tekið, en Ísland á smá í land þar,“ segir Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðs- og umhverfismála Krónunnar.
„Þetta er verkefni sem við viljum vinna áfram og þróa með okkar viðskiptavinum. Umbúðalausu lausnirnar skipta Krónuna máli því þær snerta á öllum þremur megin umhverfisþáttunum í rekstri okkar; draga úr matarsóun, spara orku og minnka umbúðanotkun,“ segir Daði.
Bæði er hægt að koma með eigin ílát en einnig grípa pappírspoka til að fylla á ef ílátið gleymist heima. Kúskús, rauðar linsu- og nýrnabaunir, kjúklingabaunir, svartar baunir, tvær tegundir hýðishrísgrjóna og tvær af pasta verða á barnum til að byrja með.
UMMÆLI