MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Þrjú atriði bætast við dagskrá Aktóberfest

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-09-14-at-16.19.09
kaffid.is

Þrjú ný nöfn hafa nú bæst við dagskrá Aktóberfest sem haldið verður í stóru partýtjaldi á Akureyrarvelli 18. september næstkomandi. Séra Bjössi, Drottningarnar og Saint Pete bætast við dágskrá hátíðarinnar í dag.

Aktóberfest fer nú fram í annað sinn á Akureyri og í ár verður hún enn stærri en í fyrra. Á síðasta ári var hátíðin haldin í portinu við Víking Brugghús og þá seldist upp og því ákvaðu skipuleggjendur að stækka við sig í ár og flytja hátíðina á Akureyrarvöll.

Þar verður risa partýtjald sett upp. Tjaldið verður vel hitað upp þannig það verður notalegt sama hvernig viðrar.

Ásamt Saint Pete, Séra Bjössa og Drottningunum koma fram: Neonbandið, Matti Matt, Vignir Snær, Ágúst Brynjars, Guðni Braga, Séra Bjössi, DJ Ayobe og fleiri. Þá verða bjórhlaup, matarvagnar, þýsk matarmenning, karaoke og önnur skemmtiatriði í boði fyrir gesti.

Miðasala fer fram á Tix.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 15. september 2026