NTC

Þrjátíu milljóna króna samningur um skylduskil Amtsbókasafnsins

Þrjátíu milljóna króna samningur um skylduskil Amtsbókasafnsins

Undirritaður hefur verið samningur um að menningar- og viðskiptaráðuneytið veiti Akureyrarbæ 30 milljóna króna styrk sem ætlað er að styðja við hlutverk Amtsbókasafnsins sem er ein af skylduskilastofnunum landsins. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Gildistími samningsins er 2023-2025 og greiðir ráðuneytið samkvæmt honum árlega 10 milljónir króna til Akureyrarbæjar vegna skilaskyldu Amtsbókasafnsins, samtals 30 milljónir króna. Samningurinn var undirritaður 13. desember í menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Sambíó

UMMÆLI