Þrír nýir útsýnisstaðir í Holtahverfi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Þessa dagana er unnið að gerð þriggja nýrra útsýnisstaða í Holtahverfi. Smíðaðir eru pallar með bekkjum þar sem gott er að una og horfa hvort heldur sem er út eða fram fjörðinn eða upp til fjalla. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar í dag.
Pallarnir verða þar sem heitir Hengingarklöpp, Sjávarklappir og Kríugerðisklöpp (sjá loftmynd). Göngustígar verða í framhaldinu lagðir að þessum litlu unaðsreitum.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










