Þrír lögreglumenn kvaddir eftir 40 ára starf

Í vikunni hélt Lögreglan á Norðurlandi eystra kveðjuhóf af því tilefni að þrír mætir lögreglumenn hafa látið af störfum hjá þeim nýverið. Þetta eru þeir Friðrik Sæmundur Sigfússon, Jóhannes Sigfússon og Sigurður Unnsteinn Sigurðsson.

„Þeir hafa allir skilað lögreglunni og samfélaginu meira en 40 árum í starfi, sinnt þar fjölbreyttum verkefnum og marga fjöruna sopið á starfsævinni. Þeim voru þökkuð farsæl störf í þágu borgaranna,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra á Facebook.

Á myndunum með þeim eru stjórnendur þau Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri, Bergur Jónsson yfirlögregluþjónn og Skarphéðinn Aðalsteinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!