Þrír handteknir eftir alvarlega líkamsárás
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók þrjá menn í gærkvöldi í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar á Akureyri. Tveir þurftu að leita sér aðhlynningar á bráðamóttökunni vegna áverkanna. Í samtali við mbl.is staðfesti Heimir Harðarson varðstjóri að hinir handteknu séu allir heimamenn. Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fimmtugsaldri, hafa þegar verið yfirheyrðir og tók Heimir fram að engin vopn hefðu verið notuð í átökunum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










