Augljóst er að glerhált er á götum bæjarins eftir að snögghlýnaði í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri hafa þrír árekstrar orðið með skömmu millibili.
Lítil sem engin slys urðu á fólki en þó var einn áreksturinn töluvert harður á gatnamótum Dalsbrautar og Glerárgötu. Erfitt er að átta sig á hálkunni í bleytunni en sumstaðar er varla hægt halda undir sér fótum. Það á því sérstaklega vel við núna að minna vegfarendur á, hvort sem um akandi eða gangandi er að ræða, að fara sérstaklega varlega.
UMMÆLI