Þriggja til fimm hæða stallað hús við Norðurtorg

Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur tekið jákvætt í tillögur um breytingu á deiliskipulagið á lóð Austursíðu 4. Brynjar Darri Baldursson, fyrir hönd Norðurtorgs, hefur óskað eftir því að heimilt verði að gera ráð fyrir 3ja til 5 hæða stölluðu húsi auk jarðhæðar/kjallara í stað 6 m hárrar byggingar fyrir verslun- og þjónustu.

Miðað er við að það verði á bilinu 50 til 55 íbúðir á hæðum 1 til 5 með bílastæði, geymslur, verslun og þjónustu í kjallara og á jarðhæð. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er reitur VÞ24 skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði með heimild fyrir allt að 100 íbúðum á efri hæðum. Mega íbúðarhús vera allt að 5 hæðir en kvöð er um verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæðum íbúðarhúsa.

Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur falið skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að vinnu að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi samhliða því.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!