Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sjö ára stúlku
Eftir Rakel Guðmundsdóttir·

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn stúlku þegar hún var sjö eða átta ára og gestkomandi á heimili hans. Þetta kemur fram á vef fréttastofu RÚV.
Maðurinn braut á stúlkunni á heimili sínu og nýtti sér traust og trúnað stúlkunnar og foreldra hennar ítrekað. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að hafa skoðað myndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt.
Í dómnum segir að maðurinn hafi frá upphafi rannsóknar gengist við þeim brotum sem hann er sakfelldur fyrir. Þá hafi hann samið um greiðslu miskabóta til stúlkunnar.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










