Þriðji sigur Þórsara í röð

Þriðji sigur Þórsara í röð

Karlalið Þórs í handbolta vann í gær góðan sigur á Selfossi í fjórðu umferð Grill 66 deildarinnar í handbolta. Þórsarar hafa nú unnið þrjá leiki í röð.

Leiknum lauk með átta marka sigri Þórs 34-26. Eftir sigurinn eru Þórsarar komnir með sex stig eftir fjóra leik og eru á toppi deildarinnar ásamt Víkingi og Fram2. Selfoss eru tveimur stigum á eftir.

Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 8, Brynjar Hólm Grétarsson 7, Oddur Gretarsson 7, Aron Hólm Kristjánsson 5, Arnór Þorri Þorsteinsson 3, Garðar Már Jónsson 2, Þórður Tandri Ágústsson 2.
Varin skot: Kristján Páll Steinsson 8.

Smelltu hér til að skoða leikskýrsluna úr leiknum.

Næsti leikur Þórs er útileikur gegn Haukum 2 á Ásvöllum næstkomandi föstudag.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó