
Áttundu umferð Dominos-deildar karla lauk í kvöld með leik Þórs og ÍR í Íþróttahöllinni.
Skemmst er frá því að segja að Þórsarar hreinlega yfirspiluðu ÍR sem sáu aldrei til sólar eftir að dómarar leiksins flautuðu á.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Munurinn var yfirleitt um og yfir tíu stig og það fór svo að lokum að Þór vann leikinn 78:62. Þriðji heimasigur Þórsara í röð staðreynd og fjórði sigurleikurinn í síðustu fimm leikjum.
ÍR tefldi fram nýjum erlendum leikmanni, Quincy Hankins-Cole. Hann lét lítið fara fyrir sér fara og skoraði aðeins 10 stig í leiknum. Hjá Þórsurum voru þeir Danero Thomas og George Beamon atkvæðamestir en en báðir settu þeir 22 stig og tóku 12 fráköst.










