Þremur starfsmönnum N4 hefur verið sagt upp störfum vegna hagræðingar í rekstri. Alls störfuðum fimmtán hjá fjölmiðlafyrirtækinu sem er með þessu að bregðast við því óöryggi sem er í rekstri fjölmiðla að sögn Maríu Bjarkar Ingvadóttur, framkvæmdastjóra N4. Frá þessu er greint á mbl.is.
Uppsagnirnar taka gildi á næstu þremur mánuðum, en starfsmennirnir voru með eins til þriggja mánaða uppsagnarfrest. María segir í samtali við mbl.is að hún hafi boðið starfsfólkinu að koma aftur inn sem verktakar í verkefni þegar þau komi inn, en tökumaður og starfsmaður í söludeild eru á meðal þeirra sem sem var sagt upp.
María segir að N4 muni halda sínu striki í dagskrárgerð.
„Þetta tengist fyrst og fremst öðrum verkefnum sem við höfum verið að sinna heldur en sjónvarpsrekstrinum. Heldur meira þessum framleiðsluverkefnum sem við höfum verið að gera, sem koma ekki inn fyrirfram pöntuð,“ segir María og bætir við að þau hafi ekki verið nægilega stöðug að undanförnu. Þetta snúist fyrst og síðast um hagræðingu í rekstri.
UMMÆLI