MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Þorvaldsdalsskokkið fer fram á laugardaginn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
106
kaffid.is

Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, verður haldið í 27. sinn þann 4. júlí. Um er að ræða óbyggðahlaup eftir endilöngum Þorvaldsdal í Eyjafirði.

Skokk þetta var fyrst haldið árið 1994 og hefur farið fram árlega síðan. Þorvaldsdalur er opinn í báða enda, opnast suður í Hörgárdal og norður á Árskógsströnd. Skokkið hefst við Fornhaga í Hörgárdal og endamarkið er við Árskógsskóla. Vegalengdin er um 25 kílómetrar.

Met þátttaka er í skokkinu í ár og um 190 manns skráðir til leiks. Forskráning fer fram á hlaup.is en einnig er hægt að hafa samband við skipuleggjendur á thorvaldsdalsskokk@umse.is varðandi greiðslu þátttökugjalda. 

Þorvaldsdalsskokkið fer fram á laugardaginn

Tengdar greinar

Uppfært: 24. apríl 2026