NTC

Þorsteinn Már kærir fyrrverandi framkvæmdastjóra félaga sem tengjast SamherjaÞorsteinn Már. mynd/samherji.is

Þorsteinn Már kærir fyrrverandi framkvæmdastjóra félaga sem tengjast Samherja

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur lagt fram kæru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á hendur Jóhannesi Stefánssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra félaga sem tengjast Samherja og ráku útgerð í Namibíu, fyrir rangar sakargiftir vegna fullyrðinga um tilraun til manndráps og frelsissviptingar. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Samherja.

Tilefni kærunnar eru ýmis ummæli sem Jóhannes hefur látið falla í fjölmiðlum og vegna fjársöfnunar sem hafin er undir þeim formerkjum að tryggja þurfi Jóhannesi heilbrigðisþjónustu vegna eitrunar.
Í kærunni kemur fram að Jóhannes kunni að hafa með ummælum sínum gefið í skyn að forstjóri Samherja hafi á einhvern hátt tengst meintri eitrun og meintum tilraunum til að nema hann á brott.

„Hingað til hef ég ekki brugðist sérstaklega við fullyrðingum og margvíslegum ásökunum Jóhannesar. Ég get hins vegar ekki lengur orða bundist því nú vill Jóhannes meina að ég eða samstarfsmenn mínir hafi gert tilraun til að ráða honum bana. Lengra verður ekki ekki gengið en að bera mönnum á brýn að ætla að ráða menn af dögum. Mér er gróflega misboðið og því er óhjákvæmilegt að spyrna við fótum. Þessu til viðbótar freistar Jóhannes þess nú að blekkja fólk til að leggja fé í söfnun undir þeim formerkjum að honum hafi verið sýnt banatilræði. Þetta er allt saman ósköp dapurlegt.“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson í tilkynningunni á vef Samherja.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó