MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Þórsarar unnu Akureyrarslaginn í handboltanum

Eftir Ingólfur Stefánsson·
813386064_1718779530253319_6433298546636869427_n
Mynd: Þór Akureyri – Handbolti· kaffid.is

Þórsarar fögnuðu sigri á KA mönnum þegar liðin mættust í bæjarslag í handbolta í KA heimilinu í gær. Þórsarar unnu 31-35 en úrslitin réðust seint og leikurinn var spennandi.

Staðan í hálfleik var 16-16 eftir mikinn baráttuleik. Það var frábær stemning í KA heimilinu og aðdáendur beggja liða létu vel í sér heyra.

Þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir var staðan 31-31. Þórsarar skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins og unnu að lokum.

Þór og KA eru nú jöfn að stigum eftir fyrstu þrjá leiki Olís deildar karla í handbolta. Bæði lið hafa unnið tvo leiki og tapað einum. Þór eru í fjórða sæti með fjögur stig og KA í því fimmta með jafn mörg stig.

Tengdar greinar

Uppfært: 17. september 2026