MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Þórsarar steinlágu fyrir Fjölni

Eftir Jónatan Friðriksson·
fjolnirthor
kaffid.is

Þórsarar sóttu Fjölni heim í 9. umferð Inkasso deildarinnnar í gær.

Staðan í hálfleik var 0-0 en strax eftir um tíu sekúndur í þeim seinni komust heimamenn í Fjölni yfir eftir sjálfsmark Þórsara. Sjálfsmarkið má sjá hér neðst í fréttinni úr spilara Vísi.is.

Fjölnir komustu svo í 2-0 á 66. mínútu þegar Jóhann Árni Gunnarsson skoraði með góðu skoti.

Fjölnir kláruðu svo endanlega Þórsara með tveimur mörkum á lokamínútum leiksins. Mörkin tvö skoruðu Ingibergur Kort Sigurðsson og Jón Gísli Ström.

Næsti leikur Þórsara er föstudaginn 5. júlí þegar Fram kemur norður og spilar á Þórsvelli á miðju Pollamóti Samskipa en mótið byrjar einmitt fyrr þann sama dag.

Eftir leikinn í gær tilkynnti Fjölnir að félagið hefði staðið að söfnun innan félagsins og gefið upphæðina sem safnast hefði í styrktarsjóð Baldvins Rúnarssonar sem féll frá fyrr í sumar eftir langa baráttu við heilaæxli. Vel gert hjá Fjölnismönnum.

Eftir leik Fjölnis og Þórs í dag gáfu, leikmenn, þjálfarar og stjórnarfólk Fjölnis, 70.000 kr. í styrktarsjóð Baldvins Rúnarssonar Þórsara sem féll frá á dögunum. #FélagiðOkkar💛— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) June 29, 2019

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026