Síðasti leikur Ljósleiðaradeildarinnar var á laugardaginn, á Arena á Smáratorgi, og töpuðu Þórsarar 3-1 gegn Dusty í úrslitaleik Íslandsmótsins í Counter Strike. Þór vann hins vegar deildarkeppnina þar sem Dusty lenti í 2.sæti.
Þór komst í úrslit með sigri Ármanni á þriðjudeginum í síðustu viku en Dusty vann Veca í seinni undanúrslitaleiknum síðasta fimmtudag.
UMMÆLI