Þór og KA mættust í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins í fótbolta í Boganum á Akureyri í gær. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 1-1 en Þór hafði betur eftir vítaspyrnukeppni.
Þetta er annað árið í röð sem Þórsarar eru Kjarnafæðimeistarar. Bjarni Guðjón Brynjólfsson kom Þórsurum yfir á 57. mínútu en Jakob Héðinn Róbertsson jafnaði fyrir KA á 88. mínútu leiksins.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Vítaspyrnukeppnin var æsispennandi og fór í bráðabana. Yann Emmanuel Affi gerði þar sigurmark Þórsara.










