Knattspyrnulið Þórs mun leika í treyjum með upphafsstöfum Baldvins Rúnarssonar í sumar til þess að heiðra minningu hans.
Baldvin lést 31. maí aðeins 25 ára að aldri eftir langa baráttu við krabbamein.
Þeim sem vilja minnast Baldvins heitins er vinsamlega bent á reikning sem opnaður hefur verið í nafni bróður hans, Hermanns Helga Rúnarssonar. Allt fé sem safnast verður fært í minningarsjóðinn, þegar hann hefur verið formlega stofnaður. Reiknisnúmerið er 565-14-605 kt: 020800-2910.
UMMÆLI