Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við norska framherjann Sebastian Haugland og skrifar hann undir þriggja ára samning við Þór. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórsara í dag.
Haugland er 29 ára gamall og hefur allan sinn feril leikið í heimalandinu. Haugland kemur til Þórs frá norska B-deildarliðinu Hodd þar sem hann var markahæsti leikmaður félagsins á síðustu leiktíð þegar Haugland skoraði átta mörk í sautján leikjum. 2024 skoraði Haugland átta mörk í fjórtán leikjum í sömu deild en þá fyrir Asane.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Við bjóðum Sebastian Haugland velkominn í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar,“ segir í tilkynningu Þórsara.










