MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Þorir ekki út úr húsi eftir árásina í Stokkhólmi

Eftir Ritstjórn·
Þorir ekki út úr húsi eftir árásina í Stokkhólmi
Margrét Ýr er búsett í Stokkhólmi

Lögreglan í Stokkhólmi hefur staðfest að 3 séu látnir og að minnsta kosti 8 slasaðir eftir að vöruflutningabíll ók inn í mannþröng á Drottningargötu, stærstu verslunargötu Stokkhólms, fyrr í dag. Sjónarvottar segja bílinn hafa ekið inn í mannþröngina og inn í Åhlens verslunarmiðstöðina. Talið er að um hryðjuverkaárás sé að ræða.

Mikil ringulreið ríkir í borginni eftir árásina og er fólki ráðlagt að halda sig innandyra og fjarri miðbænum. Almenningssamgöngur liggja einnig að mestu leyti niðri. Fjöldamargir Íslendingar eru staddir í Stokkhólmi og hefur Sendiráð Íslands í Stokkhólmi hvatt þá til að láta aðstandendur vita af sér.

Margrét Ýr Prebensdóttir, 26 ára Akureyringur búsett í Stokkhólmi, er ein af þeim sem merkti sig örugga á Facebook í kjölfar atburðarins. Hún var rétt ókomin heim til sín þegar hún heyrði fréttir af því sem hafði gerst.

,,Þetta er rosalega skrítið og óraunverulegt, é
g þori ekki út úr húsi núna þó svo ég búi í rosa öruggu og rólegu hverfi

.

Allir sem ég þekki eru í sjokki og maður veit eiginlega ekki hvernig maður á að haga sér. Ég bjóst bara aldrei við því að þetta myndi gerast hér

,“ segir Margrét Ýr í samtali við Kaffið.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026