Langhlauparinn Þorbergur Ingi Jónsson úr UFA var á dögunum valinn langhlaupari ársins 2016 á Íslandi en þetta er annað árið í röð sem hann hlýtur þessa nafnbót. Hlaup.is stendur fyrir valinu líkt og undanfarin átta ár.
Þorbergur Ingi hlaut 2033 stig í kosningu hlaupara og lesenda hlaup.is en næstur á eftir Þorbergi kom Kári Steinn Karlsson með 2023 stig.
Þessi 35 ára gamli langhlaupari hefur sérhæft sig í utanvegarhlaupum og keppir þar í hæsta gæðaflokki á heimsvísu. Hann náði til að mynda í silfur á sterku alþjóðlegu utanvegahlaupi í Sviss á síðasta ári.
UMMÆLI