Þór/KA tóku á móti ÍBV í Pepsi deild kvenna í dag í rigningunni á Þórsvelli.
Arna Sif Ásgrímsdóttir kom Þór/KA yfir á 22. mínútu með skalla eftir hornspyrnu og snemma í seinni hálfleik bætti Hulda Björg Hannesdóttir við öðru marki og aftur var það skallamark eftir hornspyrnu.
Nokkuð öruggur 2-0 sigur Akureyarliðsins sem eru ennþá taplausar í Pepsi deildinni, 10 sigurleikir og 2 jafntefli.
Næsti leikur liðsins er á miðvikudaginn þegar þær heimsækja KR á Alvogenvöllinn.
UMMÆLI