MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Þór/KA mætir Wolfsburg liði Söru Bjarkar í Meistaradeildinni

Eftir Jónatan Friðriksson·
Þór/KA lagðar af stað á EM
kaffid.is

Dregið var í 32 liða úrslit Meistaradeildar kvenna í hádeginu í dag, drátturinn fór fram í Nyon í Sviss.

Íslandsmeistarar Þór/KA fengu þýsku meistarana í Wolfsburg lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur.

Þór/KA var í lægri styrkleikaflokki en Wolfsburg voru efstar í efri styrkleikaflokki. Þá komst liðið í úrslit Meistaradeildarinnar í fyrra en tapaði þar fyrir Lyon frá Frakklandi.

Fyrri leikurinn verður spilaður á Akureyri 12. eða 13. september og sá seinni í Þýskalandi 26. eða 27. september.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026