MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Þór hefur vinnu á áætlun gegn einelti

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Aðalstjórn Þórs hefur ákveðið að hefja vinnu um áætlun gegn einelti í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. 

Markmið verkefnisins eru: • Styrkja þjálfara og aðra starfsmenn íþróttafélagsins við að greina einelti og samskiptavanda  og vinna saman gegn einelti og andfélagslegri hegðun. • Styrkja viðbragðshóp Þórs í vinnu í (meintum) eineltismálum. • Efla og styrkja foreldrasamfélag iðkenda. Þessi vinna kostar nokkurt fé og nú biðlar félagið til áhugasamra sem vilja og geta styrkt félagið í þessari vinnu. Áhugasamir geta snúið sér til framkvæmdastjóra í síma 461-2080 eða sent póst á valdi[at]thorsport.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026