MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Þjóðvegi 1 lokað tímabundið við afleggjarann að Dettifossi

Eftir Ingibjörg Bergmann·
Þjóðvegi 1 lokað tímabundið við afleggjarann að Dettifossi
Hér sést þegar verið er að reyna að færa rútuna. Myndin er tekin á vettvangi af lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Lögreglan á Norðurlandi eystra varar vegfarendur við lokun á Þjóðvegi 1 rétt við afleggjarann að Dettifossi.
Hópbifreið lenti þar í óhappi þar sem hún festist þversum á veginum og lokar því báðum akreinum. Unnið er að því að losa hana en stórar vinnuvélar eru væntanlegar fljótlega til að færa rútuna þar sem ekki gengur að snúa henni án þeirra.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026