Þjóðarsamtal í Kvosinni í MA

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, efnir til þjóðarsamtals laugardaginn 10. október í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Markmiðið er að ræða framtíðina og skapa samtal milli kynslóða um hvernig samfélag við viljum byggja upp á tímum hraðra umbreytinga. Samtalið fer fram í framhaldsskólum um allt land.
Á Akureyri verður viðburðurinn haldinn í Kvosinni í MA. Stjórnir nemendafélaganna Hugins í MA og Þórdunu í VMA taka á móti þátttakendum kl. 13:30, sjálfir samtalshringirnir hefjast kl. 14:00. Ungt fólk á aldrinum 16 til 30 ára mun stýra umræðum í blönduðum hópum þar sem fólki á öllum aldri er stefnt saman.
Hugmyndir og sjónarmið sem koma fram munu verða dregin saman og deilt með þjóðinni. Skráning fer fram á vefsíðunni www.talasaman.is, þar sem tæplega 600 manns hafa þegar skráð þátttöku sína á landsvísu.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. október 2026





