Þau Katrín Ósk Ómarsdóttir og Jóhann Stefánsson reka nú tvo Lemon staði á Akureyri en sá seinni opnaði í miðbænum í síðustu viku.
Lemon opnaði fyrst í Glerárgötu 19. maí árið 2017 og hefur verið gífurlega vinsæll á meðal Akureyringa. Hjónin þakka sjómannaverkfalli fyrir opnun staðarins hér í bæ.
„Við fórum út að borða í Reykjavík árið 2017, þar sem ég var í sjómannaverkfalli og hafði ekkert að gera. Þar smakkaði ég Lemon í fyrsta skipti,“ segir Jóhann í samtali við Að norðan á N4.
„Og skildi ekkert í því afhverju þetta væri ekki á Akureyri,“ bætir Katrín við.
Saga Lemon ævintýrisins verður í þættinum Að norðan á N4 annað kvöld.