„Það er gott að geta kallað sig HA-ing“

Sylwia Magdalena, stúdent í Háskólanum á Akureyri, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í skólanum.

Í hvaða námi ert þú? 

Ég er í BA-námi í félagsvísindum og legg áherslu á afbrotafræði við Háskólann á Akureyri. Námið er alveg ótrúlega áhugavert, við lærum meðal annars hvernig samfélagið mótast, hvernig fólk bregst við mismunandi aðstæðum og hvaða þættir hafa áhrif á líf og tækifæri fólks – og auðvitað margt fleira skemmtilegt og fróðlegt. Ég myndi klárlega mæla með náminu fyrir þá sem eru forvitnir um fólk og samfélagið.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? 

Ætli það hafi ekki verið eitthvað nýtt nánast í hverjum mánuði þegar ég var barn. Ég held að það hafi breyst frekar oft eins og hjá svo mörgum. Fyrst ætlaði ég að verða barnapía eða matreiðslukona, svo langaði mig lengi vel að verða hjúkrunarfræðingur. Síðan breyttist það í hjónabandsráðgjafa, svo lækni og þannig hélt sagan bara áfram. Hugmyndirnar voru margar og breyttust reglulega.  

Skemmtilegasta minning þín úr HA? 

Nýnemadagurinn er mjög fastur í höfðinu á mér. Ætli það hafi ekki bara verið það að hitta alla hina nemendurna, kynnast fólki og fá að kynnast kennurunum og finna strax þessa góðu og opnu stemningu sem er í HA. Svo var nýnemapartýið um kvöldið líka mjög skemmtilegt, ásamt aðildarfélagspartýinu þar sem við fengum enn betra tækifæri til að kynnast fólki.

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?  

Mér finnst háskólalífið á Akureyri mjög gott. Ég er í staðnámi og fæ því að upplifa góða kennslu á stað og hef líka aðgengi að frábæru félagslífi. Stemningin í skólanum er góð og það myndast fljótt góð tengsl bæði við samnemendur og kennara sem gerir námið bæði persónulegt og notalegt.

Hvar finnst þér best að læra? 

Ég er svolítið að flakka á milli staða þegar ég læri. Mér finnst gott að breyta stundum um umhverfi innan skólans t.d. á bókasafninu, á teppinu eða inni í kennslustofu, því það hjálpar mér að hreinsa hugann og halda einbeitingunni. En þegar kemur að erfiðustu prófunum finnst mér oft best að vera heima í rólegheitum í smá cozy stemningu, þar sem ég get einbeitt mér alveg og kúplað mig aðeins frá öllu öðru.

Hvað er það besta við að vera HA-ingur?

Listinn er í raun óteljandi langur. Samfélagið í skólanum er frábært og það er gott að geta kallað sig HA-ing. Háskólinn er passlega stór sem skapar mjög góða og hlýlega stemningu þar sem auðvelt er að líða vel í náminu. Kennararnir eru líka mjög skilningsríkir og styðjandi gagnvart nemendum sem geta verið í mismunandi aðstæðum, sem gerir námið bæði persónulegra og aðgengilegra. Einnig er námið mjög sveigjanlegt þar sem hægt er að velja á milli staðnáms og fjárnáms sem gerir mörgum kleift að stunda nám á sínum forsendum. Ég gæti því í raun ekki mælt meira með Háskólanum á Akureyri og því námi sem skólinn hefur upp á að bjóða. Það er skóli þar sem gott námsumhverf

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!