Hlynur Jóhannsson, fulltrúi Miðflokksins í bæjarstjórn Akureyrar, er hlynntur því að lausaganga katta yrði bönnuð á Akureyri. Hann leggur til að við prófum að minnsta kosti en ef illa skyldi ganga sé alltaf hægt að draga tillöguna til baka. Þetta kemur fram í grein Fréttablaðsins.
„Þetta er búið að vera í umræðunni í ansi mörg ár en aldrei neitt gerst, virðist vera mikil hræðsla í bæjarstjórnum að gera eitthvað í svona málum. Svo var þetta tekið upp á þessum fundi og eitt leiddi af öðru og þá kom bara í ljós að það var meirihluti fyrir því að banna lausagöngu katta,“ segir Hlynur.
Hann sýnir fólkinu sem hefur tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum þó skilning um ákvörðun bæjarstjórnar: „Mér er mjög annt um ketti og ég hefði alveg þess vegna geta fallist á að þetta yrði áfram óbreytt en mér fundust vera fleiri rök með banninu.“
Tillagan á að ganga í garð árið 2025 en ennþá eru eftir framkvæmdir og mögulega sektarákvæði: „Mér sýnist við hafa nægan tíma. Það er ýmis vinna eftir í þessu og það á bara eftir að finna út úr því í rólegheitunum hvernig er best að vinna úr þessu og framfylgja,“ segir Hlynur.
Hlynur er viss um að fleiri sveitarfélög feti í spor Akureyrar og banni lausagöngu katta.
Oft sagt að bæjarstjórnarfundir séu leikrit
Hann vill meina að ekkert hindri bæjarstórn við að draga bannið til baka ef eitthvað fer illa. Nefnt hefur verið að kettir gegni t.d. mikilvægu hlutverki ef upp kæmi músafaraldur. „Það er þá allavega búið að prófa þetta og sjá hvað gerist. Við eigum ekki að vera hrædd að prófa hluti og sjá hvert það leiðir okkur.“
Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, greiddi atkvæði gegn tillögunni og gagnrýndi hana fyrir að hafa verið illa undirbúin. Lítil sem engin umræða hafi verið um tillöguna.
„Við vorum ekki búin að ræða þetta neitt ofan í kjölinn,“ segir Hlynur. „Má aldrei taka upp svona óvænt mál? Ég hef oft sagt að þessir bæjarstjórnarfundir séu svolítið leikrit vegna þess að það er búið að ræða þetta allt saman annars staðar og svo segja menn þetta aftur uppi í pontu til þess að koma því út í loftið. Ef það mega aldrei koma svona smá mál sem er aðeins tekist á um án þess að allt fari á hliðina þá getum við alveg eins hætt með þessa bæjarstjórnarfundi. Þetta er bara sýndarmennska.“
Oft hafi myndast umræðu um málið innan bæjarstjórnar en aldrei verið farið í málið, að sögn Hlyns.
Ólíklegur til endurkjörs í vor
Líða fer á lok fyrsta kjörtímabil Hlyns í bæjarstjórn. Aðspurður segir hann ólíklegt að hann bjóði sig fram í næstu kosningum: „Ég er frekar frá því,“ segir hann.
Hann er óviss með núverandi skipulag bæjarstjórnar á Akureyri, að allir flokkar séu saman í meirihluta og því enginn meiri-né minnihluti. „Ég held að eftir á að hyggja hefði mér ekki þótt verra að gamli meirihlutinn hefði haldið sínu og verið áfram og við verið áfram í minnihluta, svona miðað við hvernig þetta þróaðist. En sitt sýnist hverjum þar.“
UMMÆLI