MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Telja undirgöng eða göngubrú ekki raunhæfan kost við Hörgárbraut

Eftir Ingólfur Stefánsson·
horgarbraut
kaffid.is

Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur lagt til úrbætur vegna umferðaröryggis á Hörgárbraut milli Glerár og Undirhlíðar. Í bókun skipulagsráðs segir að það sé ekki talinn raunhæfur kostur að gerð verði undirgöng eða að göngubrú verði byggð á staðnum.

Sjá einnig: Hörgárbraut og þögnin mikla

Íbúar í Holta- og Hlíðahverfi hafa ítrekað kallað eftir slíkum framkvæmdum en síðan árið 2016 hefur fjórum sinnum verið ekið á gangandi vegfarendur við Hörgárbraut.

Skipulagsráð leggur fram fimm tillögur að aðgerðum árið 2020. Lagt er til að bæta skiltun á svæðinu, sett verði upp hraðarvararskilti sem sýna raunhraða ökutækja og gefa til kynna ef ökumenn fara yfir settan hámarkshraða með fýlukarli, setja upp hraða- og rauðljósamyndavél til
uppsetningar við gangbrautina á Hörgárbraut við Stórholt, loka fyrir hjáleið frá Höfðahlíð inn á lóð N1 og endurstilling á ljósatíma gönguljósa.

Minnisblað skipulagsráð má nálgast með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 24. apríl 2026