Tafir á viðgerðum Sæfara

Samkvæmt nýjustu upplýsingum er áætlað að ferjan hefji siglingar á ný í síðasta lagi 9. mars. Sæfari fór í slipp 19. janúar í reglubundið viðhald og viðgerðir. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að endurbætur hafi reynst tímafrekari en talið var í fyrstu og því hefur dvöl ferjunnar í slipp lengst.

Á meðan Sæfari er frá siglingum verða engar farþegasiglingar milli Dalvíkur og Grímseyjar. Farþegar eru beðnir um að nýta flugferðir á meðan. Flogið er samkvæmt áætlun þrisvar í viku; á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!