Sýning Núma Kristínarsonar á Amtsbókasafninu
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Í gær opnaði sýning Núma Kristínarsonar, Málverkið sem slapp úr striganum, á Amtsbókasafninu á Akureyri. Sýningin verður opin bæði í dag 8. ágúst og á morgun á opnunartíma bókasafnsins.
„Sýningin Málverkið sem slapp út úr striganum samanstendur af fjórum lágmyndum þar sem klassíska málverkinu er snúið á haus. Striginn er skilinn eftir auður en ramminn sjálfur verður að meginviðfangsefni: málaður, skorinn út, brotinn niður og endurraðaður. Verkin rekja ferli listamannsins frá vönduðum og hefðbundnum formum yfir í hráari og frjálsari nálgun, þar sem viður, strigi, hefti og spennubönd fá að sjást. Sýningin varð til úr efasemdum um málverkið og leit að nýrri leið innan eigin listferils,“ segir Númi um sýninguna.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










