MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Svifryksmælir á Akureyri bilaður

Eftir Ingólfur Stefánsson·
svifryk
kaffid.is

Svifryksmælir Umhverfisstofnunar við Strandgötu á Akureyri sem gefur upplýsingar um loftgæði í bænum er bilaður og því eru tölurnar fyrir daginn í dag ekki marktækar.

Á heimasíðu Akureyrarbæjar má sjá upplýsingar um svifryk í bænum en mælirinn sýndi í dag hæst yfir 500  µg/m3.

Fari svifryk upp fyrir 100 µg/m3 eru loftgæði orðin mjög léleg og þá er mælst er til þess að einstaklingar með ofnæmi eða alvarlega hjarta- og lungnasjúkdóma haldi sig innan dyra. Fari það upp fyrir 150 µg/m3 fara aðrir einstaklingar að finna fyrir óþægindum.

Töluverð mengun hefur verið í bænum undanfarið en á dögunum sýndi mælirinn hátt í 200 µg/m3. Mengunin datt niður á Gamlársdag þegar snjóaði í bænum og var þá einungis um 5 µg/m3.

Sjá einnig: 

Mikil svifryksmengun á Akureyri í dag

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026