NTC

Sveitarfélagið Húnaþing vestra er fyrsti viðskiptavinur Rafræns geðheilsuátaks Mental

Sveitarfélagið Húnaþing vestra er fyrsti viðskiptavinur Rafræns geðheilsuátaks Mental

Sveitarfélagið Húnaþing vestra er fyrsti vinnustaðurinn á Íslandi til að taka í notkun Rafrænt geðheilsuátak Mental. Í tilkynningu frá Mental ráðgjöf segir að með skrefinu sýni Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri og aðrir stjórnendur í sveitarfélaginu skýra skuldbindingu til þess að setja geðheilbrigði á vinnustað rækilega á dagskrá.

„Við í Húnaþingi vestra lítum á andlega heilsu sem lykilþátt í því að tryggja vellíðan og framúrskarandi starfshæfni í vinnuumhverfi okkar. Það að innleiða Rafrænt geðheilsuátak Mental er stórt skref í rétta átt og við erum stolt af því að vera fyrsti vinnustaðurinn til að taka þátt í þessu mikilvæga framtaki. Við vonum að þetta verði öðrum sveitarfélögum og vinnustöðum hvatning til að setja geðheilbrigði í forgang,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

„Með því að þróa og kynna Rafrænt geðheilsuátak var það ekki síst markmið okkar í Mental að gera fræðslu um geðheilbrigði aðgengilega vinnustöðum um allt land. Að sjá samfélag, fjarri höfuðborginni, taka forystu með þessum hætti og setja geðheilbrigði á vinnustað á dagskrá virkar eins og ofurskammtur af D-vítamíni fyrir okkur Mental-stöllur,“ segir í tilkynningu frá Mental ráðgjöf en nánar má lesa um átakið hér:  https://mental-radgjof-s-school.teachable.com/p/gedheilsuatak

„Við erum þakklátar fyrir traustið sem Húnaþing vestra hefur sýnt okkur og stoltar af samstarfinu við sveitarfélagið og allt þeirra starfsfólk í þessari mikilvægu vegferð. Við erum sannfærðar um að þessi nýja nálgun muni ekki aðeins efla vellíðan og starfsanda í Húnaþingi heldur verða öðrum sveitarfélögum og vinnustöðum innblástur til að feta í þeirra fótspor,“ segir í tilkynningunni.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó