Svavar Ingi yfirmaður handboltamála hjá KA

Svavar Ingi Sigmundsson hefur tekið við nýju og stærra hlutverki hjá handknattleiksdeild KA en undanfarin tvö ár hefur hann gegnt starfi yfirþjálfara deildarinnar. Hann tekur nú einnig við nýju verkefni sem yfirmaður handboltamála.
„Þetta eru spennandi breytingar en Svavar eða Svabbi eins og hann er iðulega kallaður er gríðarlega metnaðarfullur og hefur heldur betur komið inn með ferska strauma inn í starf félagsins undanfarin tvö ár. Handboltinn hefur verið í mikilli uppbyggingu hjá KA undanfarin ár og höfum við mikla trú á því að Svabbi verði áfram leiðandi afl í þeirri vegferð að taka áfram skref fram á við bæði hvað varðar starf yngriflokka og meistaraflokka okkar með aukinni ábyrgð sem felst í hinu nýja starfi,“ segir á vef KA.
Svavar lék með meistaraflokk KA árin 2017-2021 og hann gekk svo til liðs við FH. Hjá FH var hann einnig yngriflokkaþjálfari sem og markmannsþjálfari yngriflokka og meistaraflokks kvenna.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










