Gæludýr.is

Svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Norðurlandi eystra

Svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Norðurlandi eystra

Svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Norðurlandi eystra var formfest á miðvikudaginn undir merkjum Öruggara Norðurland eystra.

Samstarfsaðilar í verkefninu eru Lögreglan á Norðurlandi eystra og öll sveitarfélögin í umdæminu; Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur, Þingeyjarsveit. Einnig Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sjúkrahúsið á Akureyri, Háskólinn á Akureyri, Framhaldsskólinn á Húsavík, Framhaldsskólinn á Laugum, Menntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Bjarmahlíð þolendamiðstöð.

Framkvæmdateymi starfar á vegum verkefnisins þar sem settir verða af stað fjölbreyttir vinnuhópar um það er lýtur að forvörnum í samfélaginu.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó