Akureyringurinn Sunneva Sif Jónsdóttir stóð uppi sem sigurvegari í fegurðarsamkeppninni Queen Beauty Universe sem haldin var í Flórída í nótt.
Sunneva sem er 22 ára gömul, er fædd og uppalin á Akureyri. Í þakkarræðu sinni eftir að úrslitin voru ljós sagðist hún vera að upplifa drauminn sinn.
Sunneva var valin Queen Beauty Iceland á Miss Universe Iceland keppninni á Íslandi í mars á þessu ári. Queen Beaty Universe keppnin var fyrst haldin á Spáni árið 2011.
UMMÆLI