MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi í tali og tónum

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
etvmtegg9unv15jnnaku-1
Ljósmynd: northiceland.is· kaffid.is

Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararfleifð heims auglýsti menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins. Eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk var verkefnið Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi í tali og tónum og verður haldinn viðburður í Sundlaug Grenivíkur næstkomandi fimmtudagskvöld, 10. september, kl. 19:30.

Dagskrá kvöldsins er fjölbreytt; nemendur í Grenivíkurskóla flytja tónlistaratriði, gamlar ljósmyndir verða sýndar, Björn Ingólfsson flytur erindi um sögu sundlaugamenningar í Grýtubakkahreppi og að lokum verður slegið upp sundlaugarpartýi þar sem Húsbandið frá Grenivík ásamt eistneska tónlistarmanninum Aivar Vassiljev halda uppi fjörinu.

Frítt er í sund og á viðburðinn og eru allir velkomnir, ýmist í sundlaugina, heita pottinn eða á sundlaugarbakkann á meðan „húsrúm leyfir“. Boðið verður upp á léttar veitingar en áætlað er að dagskrá ljúki um klukkan 21:00.

Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi í tali og tónum

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026