Sumaropnun Hlíðarfjalls hefst á morgun
Eftir María Hjelm·

Sumaropnun Hlíðarfjalls hefst á morgun 4. júlí og stendur til 5. september. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Hlíðarfjalls.
Á tímabilinu verður hægt að nýta Fjarkann, neðri stólalyftuna, til að koma sér upp fjallið hvort sem það er til að njóta hjólagarðsins eða til að ganga um fjallið og njóta útsýnisins. Ekki er stefnt á að opna Fjallkonu í sumar vegna viðhaldsvinnu.
Almennur opnunartími:
Þriðjudaga og fimmtudaga frá 16:30-20:30
Laugardaga frá 10:00-16:00.
Auk þess verður opið þessar þrjár helgar:
16. – 19. júlí (Enduro og Downhill keppnishelgi)
30. júlí – 2. ágúst (Verslunarmannahelgin)
27. – 30. ágúst (Downhill keppnishelgi)
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










