MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Sumarmarkaður Vonarbrúar í Sigluvík: „Allur ágóði fer til barnafjölskyldna á Gasa“

Eftir María Hjelm·
727268286_2142838883312726_3443789187201017989_n
Mynd: Vonarbrú/Facebook· kaffid.is

Sumarmarkaður Vonarbrúar hefur verið opnaður í Sigluvík á Svalbarðsströnd, í skemmunni við íbúðarhúsið.

Opnunartímar verða auglýstir á Facebook-síðunni Vonarbrú og Facebook-viðburði fyrir markaðinn.

Til sölu eru gamlir bollar, kökudiskar og alls konar postulíns- og glermunir, bækur, gullauga útsæði og oft verður líka hægt að kaupa lakkrís og hlaup.

Möguleiki er að opna markaðinn sérstaklega fyrir hópa ef vel stendur á.

Vonarbrú er almannaheillafélag með starfsemi yfir landamæri. Það var sérstaklega stofnað fyrir rúmu ári, gagngert til að koma neyðarhjálp beint til fjölskyldna á Gasa.

Vonarbrú hlaut nýlega mannréttinda viðurkenningu Akureyrarbæjar fyrir hjálparstarfið, sem hefur gengið vel miðað við þær gríðarlega erfiðu aðstæður sem eru á Gasa.

„Við þiggjum með þökkum hvers kyns leirtau og skrautmuni sem þið hafið hug á að losa ykkur við og tökum á móti því þegar markaður er opinn og eftir samkomulagi annars,“ segir í tilkynningu frá Vonarbrú.

Allur ágóði er sendur beint til barnafjölskyldna á Gasa.

Í Sigluvík má einnig finna:

Litla Blúndu og blóma búðin er í sömu skemmu og Vonarbrúarmarkaðurinn, þ.e. útgáfa Kristínar S. Bjarnadóttur með dagatöl, afmælisdagatal, mikið úrval fallegra korta með orðaperlum, ilmkerti með lífrænni ilmkjarnaolíu, servéttur, orðaperlustokk og fleira.

Flóamarkaðurinn í Sigluvík er í skemmunni við veginn, opinn á sama tíma.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026